Psalms 87

1Kóraíta-sálmur. Ljóð. 2Drottinn grundvallaði borg sína á heilögum fjöllum, hann elskar hlið Síonar framar öllum bústöðum Jakobs. 3Dýrlega er talað um þig, þú borg Guðs. [Sela] 4Ég nefni Egyptaland og Babýlon vegna játenda minna þar, hér er Filistea og Týrus, ásamt Blálandi, einn er fæddur hér, annar þar. 5En Síon kallast móðirin, hver þeirra er fæddur í henni, og hann, Hinn hæsti, verndar hana. 6Drottinn telur saman í þjóðaskránum, einn er fæddur hér, annar þar. [Sela] 7Og menn syngja eins og þeir er stíga dans: ,,Allar uppsprettur mínar eru í þér.``
Copyright information for Icelandic